Alþjóðlegt mót hófst í Marienband í Tékklandi í gær. Meðal þátttakenda er stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518). Hann vann tékkneska stórmeistarann Vitezslav Rasik (2424) í fyrstu umferð.
Önnur umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við tékkneska alþjóðlega meistarara, Karel Malinovsky (2473). Umferð dagsins hefst kl. 16.
Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15)
- Auglýsing -
















