Heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2865) vann Anish Giri (2772) í fyrsta skipti í kappskák í 2. umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær í afar vel tefldri skák. Richard Rapport (2763) lagði Jorden Van Foreest (2702) að velli. Öðrum skákum lauk með jafntefli.
♟ | What a day! Magnus Carlsen defeats Anish Giri in classical chess for the first time in history of the #TataSteelChess Tournament, Shakhriyar Mamedyarov surprises Andrey Esipenko with an unexpected opening move and Volodar Murzin wins his second game in a row! pic.twitter.com/OyVbQGskky
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 16, 2022
Shakhriyar Mamedyarov (2767) stal senunni í gær þegar hann fórnaði peði í þriðja leik gegn Rússanum Andrey Esipenko (2714). Það dugði ekki til sigurs en skákinni lauk með jafntefli.
Andrey Esipenko’s reaction to Shakhriyar Mamedyarov’s 1.d4 Nf6 2.c4 e6 3.g4. It’s only right to wear a hoodie when playing that sort of gutsy coffeeshop move in a standard game at the highest level. pic.twitter.com/RpRRlFgfhx
— Olimpiu Di Luppi (@olimpiuurcan) January 17, 2022
Normaðurinn er efstur með 1½ vinning áamt Santosh Vidit (2727).
♟ | The results of the second round of the #TataSteelChess Tournament! You can find the current standings at https://t.co/10yLfJzXNT pic.twitter.com/xqfwlQqD7H
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 16, 2022
Volodar Murcin (2515) er efstur í áskorendaflokki. Með fullt hús. Með góðri frammistöðu tryggir hann sér lokaáfanga að stórmeistaratitli. Verður Murcin meðal þátttakenda í Kviku Reykjavíkurskákmótinu 2021?

Þriðja umferð fer fram í dag. Carlsen mætir Pólverjanum unga Jan-Krzysztof Duda (2760).
Nánari umfjöllunum um aðra umferð má finna á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Úrslit og staða
- Beinar útsendingar (heimasíða) – hefjast kl. 13
- Beinar útsendingar (Chess24)

















