Vidit að tafli í Sjávarvík. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess

Tata Steel-mótið í Sjávarvík er iðulega eitt allra skemmtilegasta mót hvers árs. Lífgar upp á skammdegið í janúar. Blöndun keppenda yfirleitt mjög góð. Bæði sterkustu skákmenn heims í bland við unga skákmenn á uppleið og stutt og leiðinileg jafntefli fátíð.

Fjórum skákum af sjö lauk með hreinum úrslitum í gær.

Vidit er efstur með 2½ vinning. Fimm skákmenn hafa 2 vinninga.

Kórónuveiran hefur verið stríða mótshöldurum og hafa tveir aðstoðarmenn keppenda krækt sér í hana. Vonandi er að hún nái ekki til keppendanna sjálfra.

Fjórða umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við Van Foreest. Vidit mætir Esipenko. Viðureign Caruana og Dubov gæti einnig verið áhugaverð.

Nánari umfjöllun á Chess.com

- Auglýsing -