Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) gerði jafntefli í bæði 4. og 5. umferð alþjóðlega mótsins í Marienbad í Tékklandi sem tefldar voru í gær. Andstæðingarnir voru tékkneski FIDE-meistarinn Jakub Kusa (2297) og Þýski skákmeistarinn Nikolas Wachinger (2360). Hannes hefur 3 vinninga og er í 2.-5. sæti.
Sjötta umferð fer fram í dag. Vignir mætir þá tékkneska FIDE-meistaranum Vaclav Finek (2425).
Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15)
- Auglýsing -

















