Hannes að tafli á Kviku Reykjavíkurskákmótinu í Natura.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) vann góðan sigur á bandaríska FIDE-meistaranum Kirk Ghazarian (2379) í sjöundu umferð Marienbad Open í Tékklandi. Hannes fórnaði skiptamuni í 25. leik og innbyrti öruggan sigur 15 leikjum síðar. Hannes er í öðru sæti með 4,5 vinning.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Hannes teflir þá við tékkneska FIDE-meistarann Daniel Sorm (2345).

Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.

- Auglýsing -