Hannes að tafli

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) stóð sig prýðisvel á Marienbad Open sem lauk í morgun. Hannes hlaut 6 vinninga í 9 skákum og endaði í 2. sæti. Hannes vann góðan sigur á tékkneska FIDE-meistarann Daniel Sorm (2345) í áttunda og næstíðustu umferð í gær. Í morgun gerði hann örjafntefli, í 11 leikjum, við indverska stórmeistarann Lalith Babu (2548). Babu þessi vann mótið en hann hlaut 6½ vinning.

Frammistaða Hannesar samsvarar 2535 skákstigum og hækkar hann um 2 skákstig fyrir hana.

Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefldu í lokuðum flokki Hannesar. Hannes var næststigahæstur keppenda. Meðalstigin voru 2420 skákstig.

- Auglýsing -