Eftirfarandi upplýsingapóstur var sendur til forystumanna skákfélaga fyrr í dag.
—–
Kæru forystumenn skákfélaga.
Stjórn SÍ hélt stjórnarfund í gær. Meðal þess sem var ákveðið var:
- Íslandsmót skákfélaga
Íslandsmót skákfélaga fer fram 3.-6. mars nk.
Úrvalsdeild (5 umferðir) fer fram fimmtudag-sunnudag (tvær skákir á laugardegi)
Aðrar deildir (3 umferðir) fara fram laugardag-sunnudag (tvær skákir á laugardegi) – athugið ekki teflt á föstudegi
Lokahóf og verðlaunaafhending fer fram strax að loknu móti á sunnudeginum.
Formlegt boðsbréf væntanlegt.
2. Íslandsmót stúlknasveita
Fer fram 12. mars.
Formlegt boðsbréf væntanlegt.
3. Íslandsmót skólasveita
Íslandsmót skólasveita fer fram 18.-20. mars.
- 1.-3. bekkur, föstudaginn, 18. mars
- 1.-7. bekkur, laugardaginn, 19. mars
- 1.-10. bekkur, sunnudaginn, 20. mars
Formlegt boðsbréf væntanlegt.
4. Skákþing Íslands
Fer fram 21. apríl – 1. maí
Landsliðsflokkur fer fram á Selfossi. Búið að er senda boð á 12 keppendur.
Áskorendaflokkur verður tefldur á höfuðborgarsvæðinu.
Kveðja,
Stjórn Skáksambands Íslands
















