Sjö skákmenn hafa enn fullt hús á Skákþingi Reykjavíkur eftir tvær umferðir. Náðugt var hjá toppnum og lítið um óvænt úrslit. Hinn ungi Ingvar Wu Skarphéðinsson lagði þó hinn reynda Harald Haraldsson en Ingvar er á mikilli uppleið. Sigurstanglegustu keppendur mótsins, Hjörvar Steinn og Davíð Kjartansson áttu nokkuð náðugan dag og þeir hafa fullt hús. Sigurbjörn Björnsson sat hjá í fyrstu umferð en vann sína skák.
Stigahæstu keppendur eru Hjörvar, fide meistarinn Sigurbjörn Björnsson (2315) og alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2304). Þessir þrír verða að teljast sigurstranglegastir. Fimm skákmenn til viðbótar hafa yfir 2000 elóstig.
3. umferð fer fram sunnudaginn 6. febrúar og hefst klukkan 11:00 í húsakynnum TR í Faxafeni 12. Tvöföld umferð verður á morgun!
Í 3. umferð mætir Hjörvar hinum unga Gunnari Erik Guðmyndssyni og Ingvar Wu fær hvítt á Davíð Kjartansson.


















