Þeir félagar Hilmir Freyr Heimisson og Alexander Oliver Mai sitja nú að tafli í IM flokki í Serbíu. Um er að ræða hálfgert hraðmót þar sem 9 umferðir eru kláraðar á 7 dögum.

Hilmir hefur farið vel af stað og er efstur með 3,5 vinning eftir fjórar umferðir. Hlimir lagði rússneska skákmanninn Nikolay Averin (2086) í umferð dagsins. Árangur Hilmis hingað til samsvarar 2562 skákstigum þannig að ýmsir möguleikar eru í boði með áframhaldandi góðu gengi.

Alexander hefur 2 vinning. Hann gerði gott jafntefli í umferð dagsins gegn IM Pavlidis.

Vignir Vatnar Stefánsson átti að vera að tefla í GM flokki í Serbíu en hann lenti í hremmingum á Ítalíu og missir allavega af fyrsta mótinu og líklega af móti númer tvö líka.

Skák Hilmis Freys

Skák Alexanders

Chess-Results

- Auglýsing -