Segja má að íslensku strákarnir hafi ekki náð sér á strik í Serbíu í dag. Alexander Oliver Mai var efstur í sínum flokki fyrir umferðina en varð að lúta í dúk gegn stórmeistara. Hilmir Freyr laut einnig í dúk en Vignir gerði sitt fjórða jafntefli í jafn mörgum skákum. Aðeins hálfur vinningur í hús í dag.
Skak.is getur lofað að strákarnir koma sterkari inn á morgun!
Vignir gerði jafntefli í GM flokknum í mikilli baráttuskák við indverskan FIDE meistara. Oft erfiðir og vanmetnir á stigum Indverjarnir!

Vignir hefur 2 vinninga af 4 með jafntefli í öllum skákum hingað til.
Alexander var efstur í IM flokknum en reynslan hafði betur í dag þegar stórmeistarinn Borko Lajthajm (2344). Alexander missteig sig í taktíkinni og lenti í mátneti.

Alexander má þó vel við una enda í +15 stigum á þessu móti hingað til. Hann fær svart á Indverja í 5. umferðinni.
Hilmir Freyr Heimisson tapaði sinni skák í dag gegn reyndum skákmanni, Zoran Runic (2325) frá Bosníu. Gríðarlega dýnamísk skák og Hilmir hefur verið frábær í slíkum stöðum undanfarið en að þessu sinni hafði Runic betur og varðist fimlega.

Á morgun er svo annar tvöfaldur dagur og því mikilvægt að vera í góðum gír hjá strákunum!
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results















