112 Reykjavík
Ísland

Mótið fer fram föstudaginn 11. mars í Rimaskóla og hefst kl. 16.
Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda. Mótið hefst kl. 16:00 og áætlað er að því ljúki með verðlaunaafhendingu um kl. 18:00.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit – en hver sveit er skipuð fjórum nemendum 1.-3. bekkjar (auk allt að fjögurra varamanna).
Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjár sveitirnar og einnig efstu b-e sveitir sem og þrjár efstu landsbyggðarsveitirnar. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði
Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.-3. bekkur) er Rimaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.
Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 13, þann 9. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.










