Íslandsmót barnaskólasveita 2022 (1.-3. bekkur)

    0
    1137
    Hvenær:
    11. mars, 2022 @ 16:00 – 18:00
    2022-03-11T16:00:00-01:00
    2022-03-11T18:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Íslandsmót barnaskólasveita 2022 (1.-3. bekkur) @ Rimaskóli | Reykjavík | Ísland

    Mótið fer fram föstudaginn 11. mars í Rimaskóla og hefst kl. 16.

    Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda. Mótið hefst kl. 16:00 og áætlað er að því ljúki með verðlaunaafhendingu um kl. 18:00. 

    Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit – en hver sveit er skipuð fjórum nemendum 1.-3. bekkjar (auk allt að fjögurra varamanna). 

    Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjár sveitirnar og einnig efstu b-e sveitir sem og þrjár efstu landsbyggðarsveitirnar. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði

    Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.-3. bekkur) er Rimaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.

    Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 13,  þann 9. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

    - Auglýsing -