Alþjóðlega mótið í Kragerö í Noregi hófst í gær. Fjöldi Íslendinga tekur þátt. Meðal annars stór hluti u25-landsliðshópsins, afrekshópur frá TR og hluti landsliðsmanna í opnum og kvennaflokki. Tvær umferðir fóru fram í gær.
Titlaflokkurinn
Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) er efstur íslensku keppendanna með 1½ vinning. Andri Freyr Björgvinsson (2096), FM Símon Þórhallsson (2245), Arnar Milutin Heiðarsson (2054) hafa 1 vinning, WGM Lenka Ptácníková (2173), Gauti Páll Jónsson (2048), Birkir Ísak Jóhannsson (2103) hafa ½ vinning. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2032) Stephan Briem (2039) og Benedikt Briem (2079) eru ekki komin á blað.
Lenka gerði jafntefli við rússneska stórmeistarann Evgegny Romanov (2561) og Gauti við norska alþjóðlega meistarann Tor Fredrik Kaasen (2458).
Stigaflokkurinn

Adam Omarsson (1546), Kristján Dagur Jónsson (1797), Ingvar Wu Skarphéðinsson (1664) hafa 2 vinninga. Benedikt Þórisson (1790) hefur 1½ vinning. Jósef Omarsson (1185), Árni Ólafsson (1397), Iðunn Helgadóttir (1444) hafa 1 vinning. Bjartur Þórisson (1168) er ekki kominn á blað.
- Heimasíða mótsins
- Norskt Chess-Results
- Beinar útsendingar (titlaflokkur)
- Beinar útsendingar (stigaflokkur)
















