
Það var ekki leiðinlegt að líta á mótstöflurnar á opnu mótunum í Arendjelovac í Serbíu þegar lokið var fimm umferðum af níu. Þá sátu í efsta sæti hvor í sínum flokki Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson. Vignir hafði þá náð að sigra hinn gamalreynda stórmeistara Branko Damljanovic og hefndi þar tapsins fyrir þessum sama manni í öðru móti á sama stað í síðustu viku. Eftir umferðina var Vignir í 1.-2. sæti með 3½ vinning af 5 mögulegum. Hilmir Freyr vann í sömu umferð annan Serba, stórmeistarann Zlatko Ilincic; einn efstur eftir það með 4 vinninga af 5. Ferðafélaginn Alexander Oliver Mai, sem er ekki eins reynslumikill og hinir tveir, var einnig að ná góðum úrslitum og hafði hlotið 3 vinninga af 5 og var í 3.-9. sæti.
Í sjöttu umferð sem var tefld síðar þennan dag náði Vignir Vatnar einn efsta sæti með auðveldum sigri, en Hilmir Freyr tapaði hinsvegar og sat eftir það í 2.-4. sæti. Það verður gaman að fylgjast með þeim á lokasprettinum en Vignir á möguleika á áfanga að stórmeistaratitli.
Hann virðist ekki alltaf leggja mikið upp úr nákvæmum byrjanaundirbúningi. Í sigurskákinni yfir Damljanovic valdi hann afbrigði sem hefur á sér slæmt orð og ekki að ófyrirsynju; í miðtaflinu var fátt um fína drætti, en þá kom hann auga á óvæntan riddaraleik, sem náði að slá andstæðinginn út af laginu. Í kjölfarið fylgdi flókin barátta en framsækið kantpeð olli síðan enn meiri ringulreið:
Arandjelovac 2022; 15 umferð:
Branko Damljanovic – Vignir Vatnar Stefánsson
Enskur leikur
1. c4 b6 2. Rc3 Bb7 3. e4 c5 4. Rf3 Rc6 5. d4 cxd4 6. Rxd4 g6 7. Be3 Bg7 8. Be2 d6 9. O-O Rf6 10. f3 O-O 11. Dd2 Hc8 12. Hfc1 Dd7 13. Hab1 Hfd8 14. Rxc6 Bxc6 15. b4 h5
Máttlítil atlaga að því er virðist, en þetta peð á eftir að leika stórt hlutverk í framhaldinu.
16.a4 Db7 17. a5 bxa5 18. b5 Bd7 19. Da2 a6 20. b6 a4
_Vélarnar“ meta þessa stöðu unna á hvítt!
21. c5! dxc5 22. Rxa4?
Þó að þessi leikur sé greinilega byggður á yfirsjón er staða hvíts áfram sigurvænleg. Eftir 22. e5! er svarta staðan óteflandi.
22. … Rxe4!
Óvæntur leikur sem sló Damljanovich út af laginu. Hann gat haldið vinningsstöðu með 23. fxe4 Dxe4 24. Bf2! Dxa4 25. Dxa4 Bxa4 26. Bxa6 o.s.frv.
23. Rxc5 Rxc5 24. Hxc5 Hxc5 25. Bxc5 Bb5 26. Bxb5 axb5 27. Da7 Dd5 28. b7 Be5!
Valdar uppkomureitinn. Í tímahraki er mun erfiðara að tefla stöðu hvíts.
29. Db6 h4!? 30. Dxb5?
Tapleikurinn. Hann varð að leika 30. Bf2.
30. … h3! 31. gxh3?
Eini leikurinn var 31 Bf2 en eftir 31. …Ddxb5 32. Hxb5 Hd1+ 33. Be1 Bb8! ætti svartur að vinna.
31. … Dxf3 32. Df1
32. … Bxh2+!
Laglegur lokahnykkur. Eftir 33. Kxh2 Hd2+ er eftirleikurinn auðveldur. Hvítur gafst upp.
Ólympíuskákmótið í Moskvu blásið af?
Eftir innrás Rússa í Úkraínu vakna spurningar um framtíð ýmissa alþjóðasamtaka sem Rússar eiga aðild að. Alþjóðaskáksambandið, FIDE, lýtur forystu Arkady Dvorkovich sem lengi hefur verið vel tengdur valdstjórninni eystra. Sama dag og innrásin hófst barst tilkynning á heimasíðu FIDE þess efnis, að fyrirhugaðar alþjóðlegar skákkeppnir í Rússland yrðu hugsanlega blásnar af sem myndi þýða að hið margfrestaða ólympíuskákmót sem átti að fara fram í Moskvu í sumar félli niður.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 26. febrúar 2022.













