Hraðskákmót stúlkna í Hörpu

    0
    780
    Hvenær:
    9. apríl, 2022 @ 10:00 – 12:00
    2022-04-09T10:00:00+00:00
    2022-04-09T12:00:00+00:00
    Hvar:
    Harpa
    Harpan
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Hraðskákmót stúlkna í Hörpu @ Harpa | Reykjavík | Ísland

    Annað mótið af fimm sem áætlað er að halda árið 2022 í mótaröð Skákskólans fer fram í Hörpu laugardaginn 9. apríl og hefst kl. 10 morguninn og lýkur um kl. 13. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 5 3 Bronstein.

    Með þessu móti bætist við einn viðburður í viðamikilli dagskrá Kviku Reykjavíkurmótsins. Þetta er annað mótið í mótaröðinni sem hófst hjá Siglingaklúbnum Ými föstudaginn 18. mars sl. Tilhögun mótsins verður með svipuðum hætti en smávægilegar breytingar hafa gerðar varðandi verðlaun. Mótið er opið öllum stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri.

    Verðlaun verða þessi:

    1. verðlaun: 30 þús ferðavinningur
    2. verðlaun: 20 Þús ferðavinningur
    3. verðlaun: 15 þús ferðavinningur
    4. verðlaun: Chessable byrjunarkennsla
    5. verðlaun: Chessable byrjunarkennsla.

    Stúlkur fæddar 2012 og síðar:

    1. verðlaun: 20 þús. kr. ferðavinningur
    2. verðlaun: 15 þús. ferðavinningur

    3 verðlaun: Chessable byrjunarkennsla.

    Þá er keppt um 77 stig í mótaröðinni.

    Staðan í mótaröðinni eftir fyrsta mótið er þessi:

    1. Freyja Birkisdóttir 20 stig
    2. Iðunn Helgadóttir 15 stig
    3. Guðrún Fanney Briem 12 stig
    4. Sigrún Tara Sigurðardóttir 10 stig
    5. Katrín María Jónsdóttir 8 stig
    6. Tara Líf Ingadóttir 6 stig
    7. Þórhildur Helgadóttir 4 stig
    8. Hrafndís Karen Óskarsdóttir 2 stig

    Mótsstjórnin áskilur sér rétt til að gera breytingar á boðaðri dagskrá.

    - Auglýsing -