Sigurvegarinn Rameshbabu Praggnanandhaa frá Indlandi. — Morgunblaðið/Ómar Óskarsson.

Indverski stórmeistarinn Rameshbabu Praggnanandhaa er sigurvegari Kviku Reykjavíkursskákmótsins sem lauk með spennandi lokaumferð í Hörpu í gær. Litlu munaði að Hjörvar Steinn Grétarsson næði efsta sæti en hann endaði í 2.-5. sæti ásamt Hollendingnum Max Warmerdam, Mads Andersen frá Danmörku og Bandaríkjamanninum Abaimanyu Mishra. Þeir hlutu allir 7 vinninga af 9. Óvænt endalok sáu dagsins ljós í skák Praggnanandhaa sem sýndi hversu útsjónarsamur hann getur verið er hann sneri tapaðri stöðu í sigur gegn landa sínum Dommaraju Gukesh í síðustu umferð hlaut því 7 ½ vinning af 9 mögulegum.

Sigurvegarinn „Pragg“, eins og hann er oftast kallaður, er eitt þekktasta undrabarn Indverja og á langan feril að baki þrátt fyrir ungan aldur. Hann er fæddur í Chennai 5. ágúst 2005 og er því aðeins 16 ára gamall og yngsti sigurvegari á Reykjavíkurskákmóti. Hann er talinn einn líklegasti arftaki Wiswanathans Anands meðal Indverja en nafn þess margfalda heimsmeistara er nánast greypt inn í nafn „Praggs“, sem mætti til mótsins ásamt fríðum flokki indverskra skákmanna sem mörg hver hafa teflt hér áður, t.d. skákdrottningin Tania Sachdev og Baskar Adhiban.

Ekki blés byrlega fyrir Indverjanum í skákinni í gær:

Kvika Reykjavíkurskákmótið 2022:

Gukesh – Praggnanandhaa

Hvítur lék síðast 35. Da7-d4. Að fara í drottningakaup er vonlaus kostur svo Pragg lék 35. … Df5! Með hugmyndinni 36. Dxc3 Hxg2! og svartur nær þráskák sé hrókurinn tekinn. 36. De5?? Vill verja a5-peðið. 36. … Dg4 37. Hg1?? Annar hrikalegur afleikur. Eftir 37. Be4 Rxe4 38. Dxe4 De2 nær svartur jafntefli. 37. … Rd1!

Það á enginn neitt yfir svona leik. Hvítur er óverjandi mát og gafst upp.

Reykjavíkurskákmótinu hafa hin síðari ár verið gott tækifæri fyrir yngri skákmenn okkar til auka styrk sinn og bæta við elo-stigatöluna. Þeir sem hækkuðu mest voru Þorsteinn Jakob Þorsteinsson 113 elo, Birkir Hallmundarson 93 elo, Ingvar Wu 85 elo, Benedikt Briem, 84 elo, Tómas Möller 77 elo og Gunnar Erik Guðmundsson 63 elo.

Héðinn Steingrímsson missti af tækifæri til að blanda sér í baráttuna um sigur er hann missti unnið tafl í fyrir Tönju Sachdev í 7. umferð. Jóhann Hjartarson hlaut 6 vinninga en komst í efsta sætið eftir sjöttu umferð. Að mati greinarhöfundar var framlag hans meðal íslensku þátttakendanna það innihaldsríkasta og engin dauf né dauð augnablik í skákum hans sbr. eftirfarandi dæmi sem þegar hefur ratað í skákdálka um heim allan:

Kvika Reykjavíkurskákmótið 2022; 4. umferð:

Jóhann Hjartarson – Mads Andersen

Danmerkurmeistarinn 2016 og 2017 er hér í krappri vörn. Jóhann stóð frammi fyrir þeim augljósa kosti að leika 54. Df7+!. En ekki er allt sem sýnist. Jóhann sá óvæntan möguleika til björgunar fyrir svartan. Eftir 54. … Rxf7+ 55. exf7 Kh7 56. fxe8(D) kemur nefnilega 56. .. Dh1+! Hvítur verður að að leika 57. Kxh1 og þá er svartur patt.

En samt er vinning að hafa í stöðu því Jóhann gat vakið upp biskup á e8 sem hefði breytt öllu, 56. fxe8(B)!

Hvítur á hrók og tvo létta gegn drottningu og svartur er auk þess í mátneti. Jóhann lék 54. e7 , átti dágóða vinningsmöguleika en varð að sættast á jafntefli eftir 89 leiki.

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 13. apríl 2022.

- Auglýsing -