
Indversku undrin Praggnanandha og Nihal Sarin hafa heldur betur slegið í gegn. Ekki bara á Íslandi, þar sem þeir slógu í gegn bæði í ár og í hitteðfyrra bæði fyrir taflmennsku og skemmtilega framgöngu.
Pragga, eins og hann er iðulega kallaður, var fyrir skemmstu stórmeistari og varð með því næstyngsti stórmeistari sögunnar. Aðeins Sergei Karjakin hefur náð þeim titli yngri.
Nihal Sarin er að mörgum ekki talinn síður efnilegur. Það tók hann þó örlítið lengri tíma en núna á móti fyrir skemmstu í Abu Dhabi krækti hann sér í lokaáfangann og varð þar með 53. stórmeistari Indverja. Sá tóflti yngsti í sögunni en yfirlit yfir yngstu stórmeistara sögunnar má finna á Wikipedia.
Systir Pragga, Vaishali, varð fyrir skemmtu einnig stórmeistari kvenna, 17 ára að aldri. Hún tefldi á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu 2017 og vann t.d. goðsögnina Eugene Torre.
Það verður fróðlegt að fylgjast með indversku undrunum á komandi árum.













