Hjörvar Steinn Grétarsson er enn einn efstur á Íslandsmótinu í skák sem fram fer í Bankanum Vinnustofu á Selfossi. Hjörvar vann skák sína gegn Héðni Steingrímssyni í dag með svörtu í einstaklega vel útfærðri skák. Helstu keppinautar Hjörvars misstigu sig jafnframt flestir og því hefur Hjörvar vinningsforskot.
Hjörvar beitti Nimzo-indverskri vörn með svörtu og Héðinn valdi Rubinstein afbrigðið með 4.e3. Yfirleitt hefur Héðinn beitt 4.Dc2 afbrigðinu og í byrjuuninni notaði hann mun minni tíma og virtist betur undirbúinn.
Í miðtaflinu virtist Hjörvar hafa hlutina betur á hreinu. Tímatap hvíts Dd1-c2-b3-a4 virtist ekki gefa góða raun og lokun taflsins á miðborðinu virtist henta svörtu stöðunni betur. Þegar Héðinn opnaði svo taflið á kóngsvæng reyndist hann ekki hafa nægan liðsafla þar til að bregðast við árásum Hjörvars.
Hannes Hlífar Stefánsson virtist vera að tefla frábæra skák gegn Hilmi Frey. Hann „manúveraði“ mennina sína af stakri snilld í miðtaflinu og setti upp pressu á veikleika hvíts. Gegnumbrotið heppnaðist en þá er eins og Hannes hafi flýtt sér of mikið. 40. leikur Hannesar voru mistök og líklega missti hann af því að a2 reiturinn opnaðist fyrir hvítan riddara eftir 41.a3. Í kjölfarið snerist taflið við á ótrúlegan hátt, í jafnt tafl og loks glutraði Hannes stöðunni niður í tap. Svekkjandi niðurstaða fyrir Hannes.
Jafntefli hefði haldið Hannesi vinningi fyrir aftan Hjörvar og gefið smá titilvonir. Sömu sögu er að segja um Guðmund Kjartansson. Með sigri hefði hann komist í möguleika á titlinum. Seint í miðtaflinu var Guðmundur að snúa skákinni sér í vil og stóð líklegast til vinnings en missti skákina niður í jafntefli.
Þetta opnaði hurðina fyrir Vigni Vatnar Stefánsson sem með sigri myndi halda sér í seilingarfjarlægð, vinningi á eftir Hjörvari og þeir eiga eftir að mætast. Þar að auki átti Vignir eftir stigalægstu keppendurna, þá Símon og Alexander.
Símon hinsvegar fékk gjörunnið tafl gegn Vigni sem tefldi sína verstu skák á mótinu. Símon varð líkleagast og ákafur í að veita náðarhöggið og fórnaði manni þegar það þurfti ekki. Reyndar virtist fórnin vera að ganga upp en þá átti Vignir riddaraleik sem hélt öllu saman. Heppnissigur hjá Vigni en stundum þarf þá líka!
Síðasta skákin var vel tefld skák hjá Þresti Þórhallssyni gegn Braga. Þröstur hélt á fínum stöðuyfirburðum úr miðtaflinu og náði að halda því inn í endataflið og vinna peð sem nægði til sigurs.
Hjörvar og Vignir mætast í algjörri úrslitaskák í 8. umferðinni. Vignir verður að vinna til að opna möguleikann á einvígi um titilinn. Umferðin hefst 14:00 en er ekki fyrr en á LAUGARDAGINN þar sem nú verður tveggja daga hlé á mótinu.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 7. umferðar:
















