Aleksandr og Benedikt eru efstir og jafnir. Mynd: GB

Benedikt Briem (2062) er efstur með 4½ vinning að loknum 5 umferðum í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák. Hann vann Aleksandr Domalchuk-Jonasssson (2169) í 6. umferð dag. Aleksandr er í 2.-4. sæti með 4 vinninga ásamt Gauta Páli Jónssyni (2064), sem vann Jóhann H. Ragnarsson (1913) og Arnari Milutin Heiðarssyni (2019), sem lagði Jóhann Arnar Finnsson (1805) að velli.

Sjötta umferð fer fram á morgun og hefst kl. 18. Benedikt tekur hálfs vinnings yfirsetu. Gauti teflir við Aleksandr og Arnar mætir Benedikt Þórissyni (1778).

Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki að ári.

- Auglýsing -