Hjörvar Steinn Grétarsson var í dag krýndur sem tvöfaldur Íslandsmeistari í skák. Hann tryggði sér sinn annan titil í röð en hafði í raun gert það fyrir lokaumferð dagsins.
Hjörvar innsiglaði titilinn með nokkuð öruggum og góðum sigri á Hilmi Frey Heimissyni. Hjörvar kom því í mark með 7,5 vinning af 9 mögulegum, náði árangri sem samsvarar stórmeistaraáfanga og hækkar um 14 elóstig fyrir frammistöðuna.
Skákin í dag var eins og áður sagði sæmandi meistaranum, stöðulega vel tefld og allt „undir control“ í mið- og endataflinu.

Spennan átti að vera nokkur um verðlaunasæti en hún datt nokkuð mikið út þegar Hannes Hlífar fékk frían vinning gegn Braga sem misskildi hvenær umferðin ætti að fara fram.
Vignir heltist úr lestinni þegar hann leyfði Alexander að framkvæma gervifórn sem leiddi til þráskákar.
Jafntefli varð einnig niðurstaðan í viðureign „eftirnafnanafnanna“ Þórhallssona. Staðan var lokuð og hvorugur gat teflt áfram.
Skák dagsins var svo tvímælalaust viðurieign Héðins Steingrímssonar og Guðmundar Kjartanssonar. Guðmundur beitti skemmtilegu plani í broddgeltinum sem Bobby Fischer kom á kortið í skák sinni gegn Ulf Andersson árið 1971.
Mjög dýnamísk og skemmtileg skák.

Verðlaunahafar

- Mótið á chess-results
- Skákir mótsins á PGN
Skákvarp 9. umferðar:
















