Vignir Vatnar og Arnar Milutin. Mynd: Stefán Már Pétursson.

Fimm íslenskir fulltrúar taka þátt í EM ungmenna sem hófst í dag í Riga í Lettlandi. Einn vinningur kom í hús í fyrstu umferð en Vignir Vatnar Stefánsson (2260) vann sína skák.

Keppendurnir fimm eru auk Vignis, Arnar Milutin Heiðarsson (1749), sem teflir í flokki 16 ára og yngri ásamt Vigni, Gunnar Erik Guðmundsson (1579), sem teflir í flokki 12 ára og yngri og stúlkurnar Anna Katarina Thoroddsen (1081) og Soffía Arndís Berndsen sem tefla í stúlknaflokki 10 ára og yngri. Fararstjóri er Einar Hjalti Jensson.

Önnur umferð fer fram á morgun.

 

 

 

- Auglýsing -