Hraðskákkeppni taflfélaga 2022

    0
    1277
    Hvenær:
    26. janúar, 2023 @ 18:30 – 21:30
    2023-01-26T18:30:00-01:00
    2023-01-26T21:30:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Hraðskákkeppni taflfélaga 2022 @ Rimaskóli | Reykjavík | Ísland

    Hraðskákkeppni taflfélaga 2023 fer fram í Rimaskóla á skákdaginn þann 26. janúar næstkomandi. Keppnin hefst kl. 18:30 og verða tefldar 2*7 umferðir með tímamörkunum 3 2. Hver sveit er skipuð 6 mönnum, auk varamanna. Hvert félag má senda eins mörg lið til leiks og þau vilja. Þátttökugjöld verða 10.000 á A-sveit og 5.000 á B- og C-sveitir.

    Það lið sem hlýtur flesta vinninga verður Íslandsmeistari skákfélaga í hraðskák. Séu tvö lið jöfn verður tefld einföld umferð til að skera úr um sigurvegarann. Verðlaunagripir fyrir 3 efstu sveitirnar og fyrir efstu B og C sveitina ef að fleiri en 2 sveitir tefla í þeim flokkum. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Veitingasala verður á staðnum og er áætlað að mótinu verði lokið ekki seinna en 21:30.

     

    - Auglýsing -