Ian Nepomniachtchi (2766) tryggði sér í gær sigur á áskorendamótinu með jafntefli gegn Richard Rapport (2764).
Þar með er ljóst að Nepomniachtchi teflir næsta heimsmeistaraeinvígi en óljósara við hvern enda hefur Magnús Carlsen verið með alls konar yfirlýsingar um að hann hefði ekki áhuga að tefla ekki aftur einvígi. Öll von virðist samt ekki vera úti.
Carlsen in 2018: „The WC should be more based on rapid & blitz. It makes the chances of showing that you are a better player than your opponent. It’s not unreasonable that it’s a part of the WC“ https://t.co/nh5ZQ8bvDW
— Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) July 3, 2022
Hikaru Nakamura (2760) er í 2. sæti með 7½ vinning. Hann er því í sterkri stöðu ef Magnús hafnar því að tefla við Nepo. Hann mætir Ding Liren (2806) í dag sem hefur hálfum vinningi minna. Með sigri tryggir Kínverjinn sér annað sætið.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða) – hefjast kl. 13
- Beinar útsendingar (Chess24)
















