Það gekk vel á 2. umferð á alþjóðlegu skákhátíðinni í Budejovice í Tékklandi í gær. Sex íslenskir sigrar!
SM-flokkur
Hannes Hlífar Stefánsson (2541) vann slóvakíska alþjóðlega meistarann Viktor Gazik (2544) og hefur 1 vinning.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2487 skákstig. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda.
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 14)
AM-flokkur
Helgi Áss Grétarsson (2472) vann þýska alþjóðlega meistarann Sebastian Plischki (2384) og hefur 2 vinninga.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2335 skákstig. Helgi Áss er stigahæstur keppenda.
Opinn flokkur
Hilmir Freyr Heimisson (2281), Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244), Alexander Oliver Mai (2159) og Birkir Ísak Jóhannsson (2131) unnu allir í gær. Hilmir, Aleksandr og Alexander hafa 2 vinninga en Birkir hefur 1 vinning.
111 skákmenn frá 18 löndum taka þátt og þar af 2 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.
Solta Open
Stefán Steingrímur Bergsson (2134) situr að tafli á eyjunni Solta í Króatíu. Hann vann í fyrstu umferð.