Sjötta umferð alþjóðlegu skákhátíðarinnar í Budejovice fór fram í gær. Hannes Hlífar Stefánsson vann stórmeistarann sterka, Alexander Donchenko.

SM-flokkur

Hannes Hlífar Stefánsson (2541) vann þýska stórmeistarann Alexander Donchenko (2640). Hannes hefur 2½ vinning.

Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2487 skákstig. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda.

AM-flokkur

Helgi Áss  Grétarsson (2472) gerði jafntefli við slóvakíska FIDE-meistarann Valdimir Bochnicka (2295). Helgi hefur 4 vinninga.

Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2346 skákstig. Helgi Áss er stigahæstur keppenda.

Opinn flokkur

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) vann í gær en félagar hans, Birkir Ísak Jóhannsson (2131), Hilmir Freyr Heimisson (2281) og Alexander Oliver Mai (2159) töpuðu.

Alekandr hefur 4½ vinning og er aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Hilmir og Birkir hafa 4 vinninga en Alexander hefur 3½ vinning.

Aleksandr mætir ísraelska alþjóðlega meistaranum Boris Maryasin (2260) í dag.

111 skákmenn frá 18 löndum taka þátt og þar af 2 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.

Heimasíða mótsins

Solta Open

Stefán Bergsson (2134) tapaði í gær fyrir króatísku goðsögninni Bojan Kurajica (2525).

Stefán hefur 2½ eftir 5 umferðir.

 

- Auglýsing -