Prýðilega gekk í sjöundu umferð alþjóðlegu skákhátíðarinnar í Budejovice í gær og Íslendingarnir taplausir. Hannes Hlífar Stefánsson vann sína aðra skák í röð og Birkir Ísak Jóhannsson vann afar góðan sigur.
SM-flokkur
Hannes Hlífar Stefánsson (2541) vann sína aðra skák í röð þegar hann vann tékkneska alþjóðlega meistarann Karel Malinovsky (2463). Hannes hefur 3½ vinning.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2487 skákstig. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda.
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 14)
AM-flokkur
Helgi Áss Grétarsson (2472) gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Vaclav Finek (2393). Helgi hefur 4½ vinning.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2346 skákstig. Helgi Áss er stigahæstur keppenda.
Opinn flokkur
Birkir Ísak Jóhannsson (2131) vann tékkneska FIDE-meistarann Petr Simek (2348) í gær. Alexander Oliver Mai (2159) vann einnig.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) og Hilmir Freyr Heimisson (2281) gerðu jafntefli. Aleksandr við ísraelska alþjóðlega meistarann Boris Maryasin (2260)
Alekandr og Birkir eru í 7.-15. sæti, með 5 vinninga, aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Alexander Oliver og Hilmir Freyr eru skammt undan með 4½ vinning.
111 skákmenn frá 18 löndum taka þátt og þar af 2 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.
Solta Open

Stefán Bergsson (2134) vann í gær. Stefán hefur 3½ eftir 6 umferðir.
















