
Fimmta umferð alþjóðlegu skákhátíðarinnar í Budejovice fór fram í gær. Helgi Áss Grétarsson er í 1.-3. sæti í AM-flokki flokki. Allir keppendurnir í opna flokknum eru nálægt toppnum. Hilmir Freyr Heimisson og Birkir Ísak Jóhannsson eru í 3.-12. sæti.
SM-flokkur
Hannes Hlífar Stefánsson (2541) gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Martin Hollan (2399) og hefur 1½ vinning.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2487 skákstig. Hannes er þriðji í stigaröð keppenda.
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 14)
AM-flokkur
Helgi Áss Grétarsson (2472) vann Tékkann Jan Lajbl (2212) og hefur 3½ vinning. Helgi er í 1.-3. sæti.
Tíu skákmenn taka þátt og eru meðalstigin 2346 skákstig. Helgi Áss er stigahæstur keppenda.
Opinn flokkur
Birkir Ísak Jóhannsson (2131) vann sína fjórðu skák í röð og er í 3.-12. sæti ásamt Hilmi Frey Heimissyni (2281) með 4 vinninga.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) og Alexander Oliver Mai (2159) eru skammt undan með 3½ vinning. Aleksandr tapaði fyrir úkraínska alþjóðlega meistaranum Yevgeniy Roshka (2497).
Birkir Ísak mætir tékkneska stórmeistaranum Petr Nauman (2378) í dag. Alexander Oliver mætir næststigahæsta keppenda mótsins, tékkneska FIDE-meistaranum Josef Havelka (2396).
111 skákmenn frá 18 löndum taka þátt og þar af 2 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.
Solta Open
Stefán Steingrímur Bergsson (2134) var í fríi í gær og naut sín heldur betur eins og áhugasamir geta séð á Instragram.
Í dag teflir Stefán við króatísku goðsögnina Bojan Kurajica (2525).












