Það gekk prýðilega í níundu og síðustu umferð alþjóðlegu skákhátíðarinnar í Budejovice í gær. Tveir sigrar og fjögur jafntefli. Birkir Ísak átti frábæran endasprett á mótinu.
SM-flokkur
Hannes Hlífar Stefánsson (2541) gerði jafntefli við úkraínska stórmeistarann Artem Omelja (2478).
Hannes endaði með 4 vinninga og lækkar um 12 stig fyrir frammistöðu sína.
Tíu skákmenn tóku þátt og voru meðalstigin 2487 skákstig.
AM-flokkur
Helgi Áss Grétarsson (2472) gerði jafntefli Tékkann Tomas Civin (2419).
Helgi endaði með 5½ vinning og lækkar um 6 fyrir frammistöðu sína.
Tíu skákmenn tóku þátt og voru meðalstigin 2346 skákstig.
Opinn flokkur
Birkir Ísak og Hilmir Freyr unnu en nafnarnir gerðu jafntefli.
Birkir Ísak Jóhannsson (2131) varð efstur íslensku keppendanna en hann hlaut 6½ vinning. Hilmir Freyr Heimisson (2281) hlaut 6 vinninga. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) hlaut 5½ vinning og Alexander Oliver Mai (2159) hlaut 5 vinninga.
Birkir hækkar um 34 stig, Hilmir stendur í stað, Aleksandr lækkar um 4 stig og Alexander um 2 stig.
111 skákmenn frá 18 löndum tóku þátt og þar af 2 stórmeistarar og 3 alþjóðlegir meistarar.
Solta Open
Stefán Bergsson (2134) tapaði í gær fyrir FIDE-meistara. Stefán hefur 4½ vinning eftir 8 umferðir. Lokaumferðin fer fram í dag.















