Stefán Bergsson (2134) tók þátt í Solta Open í Króatíu sem lauk í gær. Stefán vann í lokaumferðinni og endaði með 5½ vinning í 9 skákum.

Góð frammistaða hjá okkar manni sem tók 1½ vinning á móti alþjóðlegum meisturum á mótinu. Stefán hækkaði um 19 stig fyrir frammistöðu sína.

Zlata Praha Open

Lenka Ptácníková (2066) og synir hennar, Adam (1794) og Jósef Omarssynir (1606) taka þátt í alþjóðlegu móti í Prag.

Lenka hefur fullt hús eftir 2 umferðir en strákarnir hafa 1 vinning.

34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu.

Slovakia Open Piestany 

Helgi Áss Grétarsson (2472) og Vignir Vatnar Stefánsson (2461) taka þátt í alþjóðlegu móti sem hefst í Slóvakíu í dag.

66 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar.

- Auglýsing -