Sjötta og síðasta umferð Haustmóts SA var tefld í gær og fóru leikar svona:
Sigurður-Áskell 0-1
Andri-Sigþór 1-0
Stefán-Elsa 0-1
Hilmir-Damian 1-0
Valur-Brimir 0-1
Tobias-Alexía 1-0
Lokastaðan:
Áskell Örn Kárason 5,5
Andri Freyr Björgvinsson 5
Elsa María Kristínardóttir 4
Sigurður Eiríkisson 3,5
Hilmir Vilhjálmsson 3,5
Stefán G Jónsson 3
Tobias Matharel 3
Brimir Skírnisson 3
Sigþór Árni Sigurgeirsson 2,5
Damian Jakub Kondracki 1,5
Valur Darri Ásgrímsson 1,5
Alexía Lív Hilmisdóttir 0
Þetta er fjórði meistaratitill Áskels. Hann vann haustmótið fyrst árið 1979, fyrir 43 árum!
Andri missti naumlega af sínum fjórða titli í röð; hann mátti sætta sig við jafntefli við Áskel eftir að hafa haft betri stöðu og eftir jafntefli hans við Sigurð í fjórðu umferð var róðurinn þungur. Elsa stóð vel fyrir sínu; tapaði fyrir tveimur efstu mönnum en vann aðra. Hún hækkaði mest allra keppenda á stigum.
Þeir bekkjarbræður Tobias og Brimir þurfa að tefla til úrslita um meistartitilinn í yngri flokki (f. 2007 og síðar). Það einvígi verður til lykta leitt nk. fimmtudag.
Öll úrslit og staðan á Chess-results.
















