Fjölnismenn unnu stórsigur í dag.

Skákdeild Fjölnis í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar unnu stórsigra í fjórðu umferð EM taflfélaga sem fram fór í dag. Íslandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur unnu einnig. Aðrar viðureignir íslenskra liða töpuðust.

Víkingaklúbburinn tapaði með minnsta mun gegn tyrkneskum klúbb. Jóhann Hjartarson vann á fyrsta borði.

Taflfélag Reykjavíkur vann norska félagið Nordstrand. Sulypa, Margeir og Þröstur unnu.

Fjölnir vann stórsigur á sveit frá Kósóvó, 5½-½.

Akureyringar töpuðu gegn enskum hákörlum. Skákvélin Stefán Bergsson vann FIDE-meistara.

Fjölnir og TR hafa 4 stig, Víkingaklúbburinn hefur 3 stig og SA hefur 2 stig.

Í kvennaflokkur vann Taflfélag Garðabæjar stórsigur á franskri sveit.

Sveitin hefur 3 stig.

Heimasíða mótsins

 

 

 

- Auglýsing -