Víkingaklúbburinn er í afar vænlegum málum á Atskákkeppni taflfélaga þegar fimm umferðum af níu er lokið.
Sveitin hefur 24½ vinning af 30 mögulegum. Þriggja vinninga forskot á Skákdeild Breiðabliks sem er í öðru sæti og virðist eina sveitin sem gæti veitt Víkingum einhverja keppni.
Mikil barátta er um þriðja sætið en í því sæti nú eru TR, TV og Skákgengið með 17 vinninga.
Mótinu verður framhaldið í kvöld með umferðum 6-9.
- Auglýsing -















