Hannes að tafli á EM í hrað- og atskák fyrir skemmstu.

EM í atskák lauk í gær. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2472) fór mikinn á mótinu og endaði í í 2.-11. sæti með hálfum vinningi minna en efsti maður.

Hannes fékk verðlaun fyrir sína frammistöðu í báðum mótum. Helgi Áss Grétarsson fékk einnig verðlaun í atskákinni.

Óhætt er að mæla með þessu móti. Virkilega flott framkvæmd hjá mótshöldurum. Ódýrt og afar skemmtilegt mót að sækja.

Lokastaða íslensku keppendanna varð sem hér segir

  • 11. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2472) 9 v.
  • 23. GM Helgi Áss Grétarsson (2365) 8½ v.
  • 64. GM Jóhann Hjartarson (2421) 8 v.
  • 82. GM Margeir Pétursson (2347) 7½ v.
  • 111. GM Guðmundur Kjartansson (2332) 7 v.
  • 112. IM Arnar Gunnarsson (2371) 7 v.
  • 234. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1927) 6½ v.
  • 260. Gauti Páll Jónsson (2010) 6½ v.
  • 314. Stefán Bergsson (2032) 6 v.
  • 398. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1867) 6 v.
  • 436. WIM Lisseth Acevedo Mendez (1803) 5½ v.
  • 604. Arnar Ingi Njarðarson (1513) 5 v.
- Auglýsing -