Margeir að tafli á Rilton. Mynd: Heimasíða mótsins/Lars OA Hedlund

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við stigahæsta keppenda mótsins, indverska stórmeistarann Krishnan Sasikiran  (2625) í sjöundu umferð Rilton Cup sem fram fór í dag. Margeir hefur 4½ vinning og er í 12.-38. sæti.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og þá teflir Margeir við króatíska stórmeistarann Leon Livaic (2572).

Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.

Mótið á Chess-Results

Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Adam vann og Jósef tapaði. Adam hefur 4 vinninga en Jósef hefur 2½ vinning.

Mótið á Chess-Results. 

- Auglýsing -