
Taflfélag Vestmannaeyja missti góðan félaga hinn 17. desember sl. þegar Einar B. Guðlaugsson lést, 77 ára að aldri. Hann gekk í félagið árið 1963 og var upp frá því margfaldur Vestmannaeyjameistari og einn sterkasti skákmaður Eyjanna. Síðast tefldi Einar á Skákþingi Vestmannaeyja árið 2020. Ég sá hann fyrst að tafli í júní 1968 er hann gerði jafntefli við rússneska stórmeistarann Vasjúkov í fjöltefli i Samkomuhúsinu í Eyjum en Vasjúkov hafði þá nýverið unnið unnið Fiske-skákmótið í Reykjavík ásamt landa sínum Mark Taimanov.
Einar var skákmeistari Vestmannaeyja þegar ég gekk í TV haustið ’68 og ég fylgdist grannt með taflmennsku hans. Mér fannst gaman að rekast á skákir um daginn sem ég hafði skrifað niður og ýmsir góðir menn höfðu teflt. Ég sé á þessum blöðum að það var oft hörð keppni milli Arnars Sigurmundssonar og Einars sbr. eftirfarandi stöðu:
Skákþing Vestmannaeyja 1970(STÖÐUM 1)
Einar B. Guðlaugsson – Arnar Sigurmundsson
Hvítur lék síðast 39. Hb1-b4. Báðir í tímahraki og eins og stundum gerist þegar þannig stendur á vildi Arnar leggja gildru fyrir andstæðing sinn og lék … 39. … a5??!
Hann hefði getað fallið á eigin bragði; eftir 40. Hxb6 er hvíta staðan unnin. Hvítur valdi hins vegar
40. Hxc4+??
með hugmyndinni 40. … dxc4 41. Da8+ og hrókurinn á g8 fellur. Svartur átti hinsvegar …
40. … Kb8!
og þá er hrókurinn strandaður á c4 og hvítur varð að gefa skákina.
Árið 1970 hafði Björn Ívar Karlsson snúið aftur til læknisstarfa í Eyjum. Hann var sá besti í Eyjum en á haustmótinu varð hann þó að láta sér lynda 2. sætið ásamt greinarhöfundi á eftir Einari. Á skákþinginu vann Björn hins vegar öruggan sigur. Við Einar mættumst í ársbyrjun 1971 og skákin fór í bið:
Skákþing Vestmannaeyja 1971(STÖÐUMYND)
Helgi Ólafsson – Einar B. Guðlaugsson
Biðskákir í Eyjum fyrir gos gátu dregist á langinn eins og dæmin sanna. Einar var á sjónum og að klára skákina dróst nokkuð. En biðstaðan þótti forvitnileg.
43. Hxf3
Ber þessi leikur ekki vott um óþolinmæði hins unga manns? 43. Ke3 virðist duga til jafnteflis en mér sýndist svartur geta unnið með því að leika kónginum til h3 og síðan biskupinum til g2. „Vélarnar“ staðfesta það mat.
43. … exf3 44. Kxd3 Kf4 44. Kd2 Ke4 45. Ke1 Ke3 46. Kf1 h4!
Ekki 46. … f2 47. h4! og hvítur heldur jafntefli.
47. h3 f2 48. Kg2 Ke2 49. Kh2 Kf3! – og hvítur gafst upp.
Haustið 1971 var von á hinni frægu skáksveit Útvegsbankans til keppni á 10 borðum í kappskák og hraðskák. Arnar Sigurmundsson hafði þau orð uppi að við mættum þakka fyrir að vera ekki „steindauðir“ eftir 20 leiki eða svo. Mér fannst nú fullmikil virðing sýnd hinum ágætu bankamönnum að sunnan en hvað um það; Einar tefldi á 1. borði fyrir TV við fyrrverandi Íslandsmeistara, Björn Þorsteinsson. Viðureign þeirra lauk með jafntefli.
Nú þegar 50 ára afmæli gossins nálgast horfa auðvitað margir Eyjamenn til baka og minnast tímans fyrir gos. Hvað mig varðar hef ég alltaf litið á það sem sérstakt happ að stíga mín fyrstu spor í skákinni í félagsskap manna á borð við Einar B. Guðlaugsson. Hann var dagfarsprúður maður og glaðlegur sem félagar hans minnast með hlýhug.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 7. janúar 2023















