Íslandsmót skákfélaga 2023-24, fyrri hluti

    0
    861
    Hvenær:
    12. október, 2023 @ 19:00 – 15. október, 2023 @ 16:00
    2023-10-12T19:00:00+00:00
    2023-10-15T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Rósarimi 6
    112 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Íslandsmót skákfélaga 2023-24, fyrri hluti @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2023-24 fer fram dagana 12.-15. október nk. Fyrri hlutinn fer fram í Rimaskóla (ath. ekki Egilshöll).

    Fyrsta umferð (eingöngu í úrvalsdeild) mun hefjast kl. 19.00 fimmtudaginn 12. október.

    Aðrar deildir munu hefjast föstudaginn 13. október kl. 19:00. Síðan verður teflt laugardaginn 14. október kl. 11.00 og kl. 17.30 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 15. október. Allar deildir hefjast á sama tíma. Athugið breyttir umferðartímar frá fyrri árum.

    Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 22. september kl. 23:59. Skákmenn án félags og skákstiga eru undanþegnir þeim fresti.

    Í úrvalsdeild verða tímamörkin til reynslu í ár 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartími 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.

    Þátttökugjöld 2023-24 verða óbreytt frá fyrri ári.

    • Kvikudeildin 132.000 kr.
    • 1. deild kr. 88.000 kr.
    • 2. deild kr. 44.000 kr.
    • 3. deild kr. 33.000 kr.
    • 4. deild kr. 22.000 kr.

    SÍ endurgreiðir ferðakostnað innanlands, fyrir þá sem koma langt að. Allt að kr. 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar en kr. 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og í 1. fyrstu deild gegn framvísun kvittana. Ekki er endurgreiddur ferðakostnaður fyrir aðrar deildir.

    Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Skráningarfrestur er til 19. september 2023 í úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild en til 5. október í 4. deild.

    Síðari hluti mótsins fer fram 29. febrúar – 3. mars 2024.

    - Auglýsing -