Þórleifur Karlsson er efstur á Skákþingi Norðlendinga fyrir lokaátökin.

Þórleifur Karl Karlsson, sem varð Norðurlandsmeistari fyrir tveimur árum, hefur góða forystu á mótinu nú þegar sjö umferðir hafa verið tefldar af níu. Staða efstu manna:

Þórleifur Karlsson   6,5
Elsa María Kristínardóttir og Stefán Bergsson 5,5
Áskell Örn Kárason og Smári Ólafsson 5
Eymundur Eymundsson, Helgi Valur Björnsson og Jón Heiðar Sigurðsson 4,5

Tvær síðustu umferðirnar verða tefldar á morgun og hefst taflið kl. 10. Að þeim loknum verður Hraðskákmót Niorðlendinga haldið og hefst það um kl. 13.

Sjá heildarstöðuna og öll úrslit á chess-results.

Heimasíða SA

- Auglýsing -