Í gær var tefld síðasta kappskákin í heimmeistaraeinvígi Ding og Nepo. Einvíginu lauk 7-7. Framlenging heimsmeistaeinvígisins hefst kl. 9. Fyrst tefla þeir fjórar atskákir (25+10). Þeir drógu um liti í gær og hefur Kínverjinn hvítt í fyrstu skákinni. Takist öðrum hvorum þeirra að ná í 2½ vinning verður sá hinni sami heimsmeistari í skák.

Ef jafnt tefla þeir tvær hraðskákir (5+3). Verði enn jafnt tefla þeir annað slíkt hraðskákeinvígi. Dregið er um liti í upphafi hvors einvígis.

Verð enn jafnt tefla þeir styttri hraðskákir (3+2) með skiptum litum þar sem til annar hvor þeirra vinnur skák. Dregið er um liti fyrir fyrstu skákina. Verði jafntefli tefla þeir með skiptum litum þar til úrslit fást.

Lýsendur hjá FIDE eru Vishy Anand, Daniil Dubov og Irina Krush.

Chess.com er einnig öflugt lið í sínum skýringum.

- Auglýsing -