Hjörvar og Jóhann taka þátt.

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 15 í dag. Tvær afar mikilvægar skákir fara fram en 4 af 5 stigahæstu keppendum mótsins mætast innbyrðis í dag. Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, Hjörvar Steinn Grétarsson, hefur hvítt gegn Jóhanni Hjartarsyni.

Í hinni aðalskák umferðarinnar mætast Íslandsmeistarinn þrettánfaldi Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson. Guðmundur hefur unnið Íslandsmótið á þriggja ára fresti síðan 2014 og því ætti aftur að vera kominn tími á Guðmund ef sú regla heldur sér.

Í umferð dagsins mætast:

  1. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2539) – GM Jóhann Hjartarson (2466)
  2. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2521) – GM Guðmundur Kjartansson (2402)
  3. Jóhann Ingvason (2076) – GM Henrik Danielsen (2501)
  4. IM Hilmir Freyr Heimisson (2353) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (2470)
  5. GM Bragi Þorfinnsson (2431) – IM Dagur Ragnarsson (2346)
  6. FM Alexksandr Domalchuk-Jonasson (2338) – WGM Lenka Ptácníková (2099)

Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
  2. Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
  3. Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
  4. Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
  5. Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
  6. Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
  7. Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
  8. Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
  9. Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
  10. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
  11. Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
  12. Jóhann Ingvason (2076-0)

Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.

Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.

Styrktaraðilar mótsins eru

  • Hafnarfjarðarkaupstaður
  • Algalíf
  • Teva
  • Lengjan
  • Guðmundur Arason
  • MótX

Tenglar

- Auglýsing -