Fjórða umferð hefst kl. 15 í dag uppstigningardag eins og aðrar umferðir að lokaumferðinni undanskildri.
Efstu menn mótsins Guðmundur og Lenka mæta bæði stórmeisturum. Guðmundur teflir við Jóhann Hjartarson í dag og Lenka mætir Vigni Vatnari Stefánssyni.
Umferðin hefst kl. 15 á Ásvöllum. Heitt á könnunni og hægt að fylgjast með skákunum á skjám og ræða við aðra skákspekinga. Heyrst hefur að Elvar Guðmundsson mæti á skákstað í dag.
Rétt er að benda á Skákvarpið hans Ingvar sem hefst á milli 16:00 og 16:30.
Í umferð dagsins mætast (vinningar í sviga):
- WGM Lenka Ptácníková (2½) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (2)
- GM Guðmundur Kjartansson (2½) – GM Jóhann Hjartarson (1)
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1½) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (2)
- GM Henrik Danielsen (2) – IM Hilmir Freyr Heimisson (1½)
- IM Dagur Ragnarsson (1) – GM Hjörvar Steinn Grétarsson (1)
- Jóhann Ingvason (½) – GM Bragi Þorfinnsson (½).
Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
- Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
- Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
- Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
- Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
- Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
- Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
- Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
- Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
- Jóhann Ingvason (2076-0)
Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)















