Úrslit Landsmótsins í skólaskák hefjast í dag kl. 11:00. Mótið fer fram við glæsilegar aðstæður í húsnæði Siglingaklúbbs Kópavogs að Naustavör 14.
Úrslitin verða tefld í tólf manna flokkum þar sem allir tefla við alla. Keppendum verður boðið upp á holla orku (ávexti o.s.frv.) meðan á mótinu stendur.
Teflt er í þremur flokkum, 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Dagskrá:
- Laugardagurinn, 10. júní, Kl. 11:00 – u.þ.b. 17:00
- Sunnudagurinn, 11. júní, Kl. 11:00 – u.þ.b. 16:30
Mæting á laugardegi 10:40 – klukkur fara í gang 11:00.
Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir einvígi um titilinn með hraðskáktímamörkum. 5 03. Einvígi fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu. Um önnur sæti gilda mótsstig.
Verðlaun í elsta flokki:
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.
Verðlaun í yngri flokkum
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
- Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.
Keppendur af landsbyggðinni fá ferðastyrk gegn framvísun kvittana.
- Flug fyrir þá sem það þurfa
- Gisting ef nauðsynleg
- Endurgreiddur bensínkostnaður fyrir keppendur utan höfuðborgarsvæðisins sem koma keyrandi. Miðað er við 25 kr. á kílómeter
Skákstjóri er Daði Ómarsson.
Nánar um keppendur, pörun og úrslit á chess-results:
Sýnt er beint frá tveimur skákum í flokki 8.-10. bekkjar og efstu borðunum í yngri flokkunum.
Skákstjóri mótsins er Daði Ómarsson


















