Hannes Hlífar Stefánsson er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum í 3. sæti ásamt öðrum eftir jafntefli í dag við kínverska stórmeistarann Yan Liu (2545).
Hilmir Freyr Heimsson tapaði í Prag fyrir stórmeistaranum Deep Sengupta (2473). Indverjinn reyndist of djúpur og fórnaði skiptamun í frakkanum og hafði betur gegn okkar manni.
Hilmir hefur 5,5 vinninga af 7 og er enn efstur Íslendingana. Aleksandr Domalchuk-Jonasson lagði Þjóðverjann Patrick Seitz (2208) og hefur nú 5 vinninga.
Bárður Örn Birkisson (2179) kemur næst með 4,5 vinnig þrátt fyrir tap gegn indverrska alþjóðlega meistaranum Upadhyaya Anwesh (2353) í sjöundu umferðinni.
Fjóra vinninga hafa þeir Björn Hólm Birkisson (2121), Davíð Kolka (1959) og Aron Þór Mai (2077). Björn vann sína skák í dag en Davíð og Aron gerði jafntefli í sinni skák.
Alexander Oliver Mai (2128) gerði jafntefli við WCM Jia Ru Sim (1931) frá Malasíu og hefur 3,5 vinning. Jóhann H. Ragnarsson (1908) gerði einnig jafntefli í sinni skák við Mohammed Fahad Alsemail (1763) frá Saudi-Arabíu og hefur 2,5 vinning.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)

Jóhann Hjartarson (2454) rétti aðeins úr kútnum og vann sína skák í dag gegn Maximilian Heinrichs (1830). Jóhann hefur 1,5 vinning af 5 mögulegum.

Hannes Hlífar Stefánsson gerði eins og áður sagði jafntefli við kínverska stórmeistarann Yan Liu (2545) og hefur nú 4 vinninga af 5 mögulegum, hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Hannes fær annan Kínverja, Xiongjian Peng (2461) með svörtu í 6. umferðinni.
















