Helgi Áss vann sinn þriðja sigur í röð í A-flokki í Pardubice og Sigurður Ingason gerði gott jafntefli í B-flokki. Stefán Bergsson rétti vel úr kútnum á lokaða Kingston mótinu á Englandi.
Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Helgi hafði 5 vinninga af 6 fyrir umferð dagsins.
Helgi mætti þýska FIDE meistaranum Michael Coenen (2295) og hafði svart. Helgi er oft í sínum eigin „sullufótar-systemum“ með svörtu mönnunum og engin breyting var á því í dag. Helgi beitti hinum svokallaða tveggja riddara tangó (e. Two Knights Tango) en staðan fór þó fljótlega á þekktari slóðir Nimzo-indverskrar varnar.
Stöðubarátta tók við þar sem Helgi kann vel við sig. Fljótlega í miðtaflinu fóru svörtu mennirnir að verða mun virkari eftir stórmeistaralegar tilfæringar Helga. Á einum tímapunkti fór Þjóðverjinn greinilega algjörlega á taugum og ýtti á „panikk-takkann“ alltof snemma. Eftir hinn f3 leik hvíts í erfiðri stöðu hrundi allt og Helgi var fljótlega orðinn þremur peðum yfir og kóngur hvíts berskjaldaður.
Helgi er kominn einn í annað sætið með 6 vinninga af 7 mögulegum. Í áttundu umferðinni mætir hann indverska stórmeistaranum Babu Lalit (2537) og hefur aftur svart. Helgi því í sannkölluðu dauðafæri að ná góðu sæti á þessu móti en Helgi fær svo hvítt í lokaumferðinni að öllum líkindum.

Sigurður Ingason (1721) tefli i B-flokki á Czech Open í Pardubice. Sigurður er númer 138 í styrkleikaröð af 279 keppendum.
Í sjöundu umferð mætti hann Tékkanum Michael Dome (1939) og endaði sú skák með jafntefli. Sigurður hefur því 4 vinninga af 7 mögulegum, hann mætir Þjóðverjanum Anton Weigand (1952) í áttundu umferð.

Stefán Bergsson (2169) tekur þátt í lokuðum flokki á Englandi. Stefán er fjórði stigahæsti keppandinn í nokkuð jöfnum flokki. Teflt er nokkuð ört og yfirleitt tvær skákir á dag. Stefán fór illa af stað og hafði 1 vinning að loknum 5 umferðum.
Í dag hóf Stefán vinnuna við að „redda“ mótinu. Hann fékk fyrst svart á stigahæsta keppandann, Svíann Daniel Johnson (2224). Stefán tefldi af festu og öryggi og tryggði sér gott jafntefli. Ákveðin Botvinnik nálgun að ná jafntefli til að koma sér aftur inn í mótið.
Í seinni umferð dagins og sjöundu umferð alls vann Stefán svo góðan sigur á ensku landsliðskonunni Zoe Varney (2020). Stefán fékk ágætis frumkvæði og betri liðsskipan og sú enska náði aldrei að koma mönnunum almennilega út né kóngnum í skjól. Stefán mátaði kóng andstæðings sem hafði ráfað um borðið bara til að enda skákina á upphafsreitnum.
Stefán hefur því 2,5 vinning af 7 og mun klára þetta mót vel ef Skak.is þekkir hann rétt!
















