Helgi Áss heldur áfram magnaðri sigurgöngu sinni á Czech Open í Pardubice. Helgi vann sína fjórðu skák í röð í dag og er einn efstur fyrir lokaumferðina. Sigurður Ingason gerði gott jafntefli í B-flokki. Stefán Bergsson „pulsaði sig svo út“ í lokin á lokaða Kingston mótinu á Englandi, gerði tvö jafntefli í dag.

Helgi Áss að tafli.

Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Helgi hafði 6 vinninga af 7 fyrir umferð dagsins.

Helgi var einn í öðru sæti með 6 vinninga af 7 mögulegum og mætti efsta manni,  indverska stórmeistaranum Babu Lalit (2537) og hafði svart. Helgi tefldi af meiri festu en áður með svörtu í mótinu og beitti slavneskri vörn. Nokkuð þekkt teóría lengst framan af skák. 14…Hb8 fyrsti nýji leikurinn í skákinni. Helgi fór djúpt í skotgrafirnar og hálfpartinn ögraði Indverjanum að koma ef hann þorði!

Segja má að Helgi hafi leitið í smiðju meistara Bronstein með því að hörfa með biskup sinn á g8 reitinn í 19. leik

Eftir næstu leiki, 20.Rd3 f6 þá metur tölvan stöðuna sem nemur einu peði betri á svart (-1 í tölvum). Ótrúlegt þar sem aðeins einn maður svarts, a5-peðið, fer fram yfir sjöttu reitaröð!

21.Bf3?? reyndist afleikurinn sem þurfti. Nú sprakk svarta staðan út eins og Fram í fallbaráttu í gamla daga.

21…e5 og svo 22…f5 í kjölfarið og svartur tók algjörlega yfir frumkvæðið, miðborðið og öll borð sem í boði voru! Hvíta drottningin var svo fönguð í 29. leik og eftirleikurinn bara spurning um smá raðtækni sem vafðist ekki fyrir borgarfulltrúanum.

Þar sem Indverjinn var efstur fyrir umferðina og Helgi vann hann, þá er Helgi Áss orðinn einn efstur með 7 vinninga af 8 mögulegum. Helgi fær að öllum líkindum alþjóðlega meistarann  frá Kazakhstan Zhandros Agmanov (2430). Ritstjórn setti inn úrslit á efstu borðum í Swiss Manager forrintu og paraði og þetta virðist nokkuð örugglega pörunin, passar við liti. IM Christopher Noe fær Babu Lalith en einn af þessum fjórum verða efstir eftir lokaumferðina. Helga nægir mögulega jafntefli til að klára dæmið en jafntefli myndi allavega deila efsta sæti ef Babu Lalith ynni sína skák.

Sigurður Ingason situr að tafli í B-flokki á Czech Open

Sigurður Ingason (1721) tefli i B-flokki á Czech Open í Pardubice. Sigurður er númer 138 í styrkleikaröð af 279 keppendum.

Í áttundu umferð mætti Þjóðverjanum Anton Weigand (1952) og skildu leikar jafnir. Sigurður hefur 4,5 vinning og er að hækka þokkalega á stigum.

Í lokaumferðinni mætir Sigurður Lettanum Atis Friedenstein-Bidrins (1876)

Chess-Results

Stefán Bergsson (2169) lauk í dag leik á lokuðu móti á Englandi. Stefán var fjórði stigahæsti keppandinn í nokkuð jöfnum flokki. Stefán byrjaði mótið illa, tapaði 4 skákum í röð og hafði 2,5 vinnig af 7 fyrir lokadaginn. Stefán gerði jafntefli í báðum skákum dagsins.

Í fyrri skákinni mætti Stefán enska Kandídatameistaranum Mark Josse (2175). Stefán fékk betra tafl úr byrjuninni en náði ekki að gera sér mat úr þvi. Jafntefli var samið þegar taflið var í jafnvægi og hafði einfaldast töluvert.

Í seinni umferð dagins gerði Stefán einnig jafntefli, nú við Robert F Willmoth (2129). Það mætti segja að báðir keppendur hafi ákveðið að vera ekkert að rugga bátnum!

Ekki gott mót hjá okkar manni sem tapar um 34 elóstigum en hann bætir það á næsta móti!

- Auglýsing -