Helgi Áss átti möguleika á að ná fram sigri á hinu rótgróna og vel sótta Czech Open í Pardubice. Helga hefði nægt jafntefli í lokaumferðinni og á einum stað hefði hann líklega átt að ná því! Tap á versta tíma staðreynd en heilt yfir gott mót. Sigurður Ingason kláraði með sigri í B-flokki á sama móti.

Helgi Áss Grétarsson (2475) var númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum á mótinu. Fyrir lokaumferðina var okkar maður einn efstur með 7 vinninga af 8 mögulegum.
Helgi mætti alþjóðlegum meistara frá Kazakhstan Zhandros Agmanov (2430). Kazakinn var að eiga gott mót og eygði möguleika á stórmeistaraáfanga. Hann lagði m.a. Sergei Movsesian að velli fyrr á mótinu.
Helgi stýrði hvítu mönnunum og upp kom Ragozin byrjunin. Byrjunin var tefld nokkuð hratt en Helgi var þó fyrri til að „hægja á hugsuninni“. Eftir 12…c4 byrjaði Helgi að hugsa. Hér höfðu báðir rétt rúman klukkutíma á klukkunni. Peðið á b7 er óvaldað og spurning hvort hvítur taki það. Helgi valdi að taka það eftir korters umhugsun.
Spurning er hvort að Kazakinn hafi þekkt afbrigðið betur. Hér er á ferð lína í Ragozin sem t.d. má finna á Chessable.

Það hefur færst mikið í vöxt að menn nýti sér Chessable við allan byrjanaundirbúning og mikið af efni í boði þar. Chessable styrkir vel við Skáksambandið og óhætt að mæla með því að eiga viðskipti við þá! Eins og smá má á skjáskotinu er staðan eftir 12…c4! þekkt í fræðunum. Kazakinn valdi reyndar að leika 13…Da5!? í stað 13…Db6. Í báðum tilvikum virðist svartur hafa fína stöðu og allavega sist verri stöðu þrátt fyrir peðstapið.
Eftir 13…Da5!? tók Helgi sér góðan hálftíma til að skoða stöðuna. Að lokum lék Helgi 14.Db4 sem gerir tilraun til að hanga á peðinu. Hér á Helgi aðeins 15 mínútur eftir og mögulegt að tímaskortur hafi kostað hann síðar í skákinni! Allavega mætti segja að tímanotkun á síðustu tvo leiki hjá Helga hafi verið eilítið galin þó vissulega hafi hér verið ákveðinn vendipunktur í skákinni þar sem hvítur þarf að ákveða mjög mikilvægan farveg sem skákin er að fara í.
Svartur hafði fullar bætur fyrir peðið og endaði á að vinna það til baka. Hvítur er þar með biskupaparið en mikilvægasta trompið í stöðunni virðist vera c-peð svarts.
Tölvurnar gáfu hér svörtum örlítið betra mat en þegar hér var komið við sögu áttu báðir um 5 mínútur eftir á klukkunni. Helgi varðist í erfiðri stöðu en fékk dauðafæri í 30. leik eftir 29…Rc1?
Með meiri tíma á klukkunni hefði Helgi vafalítið fundið 30.Bxc4! dxc4 31.d5 Hb1 32.dxe6 Rd3+ 33.Ke2 Rxe5 34.exf7
Hér myndi svartur þurfa að gefa riddarann fyrir peðið. 34…Hb8 35.He7 bjargar deginum.
Í staðinn kom 30.Bd1? sem gefur svörtum unnið tafl eftir 30…Hd2! þarna skildi svo sannarlega á milli feigs og ófeigs. Frelsinginn á c-línunni kostaði í kjölfarið mann og Kazakinn vann skákina og þar með Czech Open 2023. Helgi endaði í 2-9. sæti eftir tapið í lokaumferðinni.
Helgi hækkar um 6 elóstig fyrir frammistöðuna en væntanlega mun það svíða að hafa misst af sigri á svo sterku og þekktu móti. Engu að síður gott mót hjá Helga sem tefldi vel heilt yfir. Hann heldur nú á annað mót þar sem hann mun m.a. hitta Vigni Vatnar.

Sigurður Ingason (1721) tefldi i B-flokki á Czech Open í Pardubice. Sigurður var númer 138 í styrkleikaröð af 279 keppendum.
Í lokaumferðinni mætti Sigurður Lettanum Atis Friedenstein-Bidrins (1876) og kláraði fínan endasprett með því að leggja hann að velli. Sigurður endaði því með 5,5 vinning og endar í 68. sæti, töluvert fyrir ofan styrkleikaröðun. Fyrir árangurinn hækkar Sigurður um 40 elóstg.















