Magnús Carlsen að tafli Mynd: Lennart Ootes.

Framundan á næstu vikum er gríðarleg skákveisla. Heimsbikarmótið er að jafnaði eitt vinsælasta skákmótið á dagatalinu en það er haldið annað hvert ár. Tveir efstu menn á heimsbikarmótinu fá sæti í Kandídatamótinu þar sem teflt er um réttinn til að skora á ríkjandi heimsmeistara.

Mótið að þessu sinni fer fram í Baku, fæðingarborg 13. heimsmeistarans Garry Kasparov. Sterk skákhefð í Baku og verður vel haldið utan um keppnina, það er morgunljóst! Baku hélt ólympíuskákmót nú síðast 2016 og gerðu það með glæsibrag.

Kristján Örn var skákdómari í Bakú 2016

Mótið hefur verið haldið með þessu fyrirkomulagi síðan árið 2005. Upphaflega voru alltaf 128 manns og beinn útsláttur en nýverið var aðeins bætt í og nú hefja 206 manns leik og 50 efstu menn sitja hjá í fyrstu umferðinni. Langt og strangt mót framundan. Síðasta skákin verður 26. ágúst og teflt verður á hverjum degi að undanskildum 8. og 18. ágúst sem eru frídagar.

Í hverri umferð fer fram einvígi og tekur hvert einvígi þrjá daga. Á fyrsta degi er tefld kappskák og svo á öðru deginum seinni einvígisskákin. Þessar skákir eru með hefðbundnum nútíma tímamörkum 90+30 og svo bætast 30 mínútur við eftir 40 leiki.

Á umspilsdegi/þriðja degi er teflt til þrautar ef kappskákin endar 1-1. Fyrst er teflt atskákeinvígi 25+10 tvær skákir. Ef þá er enn jafnt eru tefldar atskákir 10+5. Ef leikar eru enn jafnir er farið í hraðskákir með tímamörkunum 5+3. Sé það jafnt er farið niður í hraðskákir með tímamörkunum 3+2. Þar er dregið um lit og tefld ein skák til úrslita. Fari hún jafntefli er skipt um lit og aftur mun sigur vinna einvígið.  Einvígin geta þvi orðið ansi löng ef 3+2 hraðskákirnar enda í mörgum jafnteflum!

Heildarverðlaunafé er US$1,834,000, og fyrstu verðlaun US$110,000.

Verðlaunafé í dollurum
Hvenær dottið út Verðlaun Alls
Eliminated in Round 1 78 × 3,000 234,000
Eliminated in Round 2 64 × 6,000 384,000
Eliminated in Round 3 32 × 10,000 320,000
Eliminated in Round 4 16 × 16,000 256,000
Eliminated in Round 5 8 × 25,000 200,000
Eliminated in Round 6 4 × 35,000 140,000
4th place 1 × 50,000 50,000
3rd place 1 × 60,000 60,000
Runner-up 1 × 80,000 80,000
Winner 1 × 110,000 110,000
Total 1,834,000

 

Flestra augu munu beinast að Magnus Carlsen (2835) stigahæsta skákmanni heims. Magnus hefur aldrei unnið Heimsbikarmótið enda sjaldan verið með þar sem ríkjandi heimsmeistari hefur lítið við það að gera að öðlast keppnisrétt á áskorendamóti!

Flestir af stigahæstu skákmönnum heims eru mættir til leiks. Af topp 10 eru það aðeins ríkjandi heimsmeistari Ding Liren ásamt þeim Alireza Firouzja, Vishy Anand og Richard Rapport sem ekki taka þátt.

Auk bestu skákmanna heims eru ýmsir sem öðlast keppnisrétt í gegnum allskonar svæðamót og því er flóran á þessu móti ekki langt frá því að jafnast á við ólympíuskákmót.

Skak.is mun aðeins fara yfir persónur og leikendur. Skákmenn sem eru líklegir til afreka og eins menn sem gaman gæti verið að fylgjast með.

Magnus Carlsen (2835) frá Noregi 32 ára. Heimsmeistarinn fyrrverandi er stigahæsti skákmaður heims sem fyrr og er númer 1 í styrkleikaröð á mótinu. Spurning er hvernig hann verður stemmdur en það er alltaf erfitt að veðja á móti Magnus Carlsen. Norðmaðurinn er talinn langlíklegastur í veðbönkum og eru líkur hans á sigri 2,4/1.

Skak.is spáir því að Magnus fari langt og að hann mun þegar lengra dregur vinna sín einvigi í bráðabönum. Magnus kann best við sig í styttri tímamörkum og er ríkjandi heimsmeistari í bæði hraðskák og atskak.

Heimsmeistarinn í Fischer-slembiskák og „bullet-guðinn“ Hikaru Nakamura (2787) frá Bandaríkjunum er númer 2 í keppnisröð og jafnframt næststigahæsti skákmaður heims í dag. Hikaru hefur verið í mikilil sókn undanfarin ár eftir að hafa verið nánast hættur að tefla í kappskákmótum. Stuðull upp á 9.90 fæst á sigur Hikaru Nakamura hjá veðbönkum.

Hikaru á að geta farið langt, hann er eins og Magnus eitraður í hröðum skákum og með bullandi sjálfstraust. Bandaríkjamaðurinn er einnig nýgiftur. Hann giftist á dögunum skákkonunni Atousa Pourkashiyan frá Íran.

Spurning hvaða áhrif það hefur en mætir menn og reyndir skákrefir hafa reiknað það að giftingar kosti 100-150 stig í skákstyrkleika! Ritstjórn selur það ekki dýrara en hún keypti þau spakmæli!

Hikaru á að geta farið langt og jafnvel alla leið!

Rússinn og „næstum því“ heimsmeistarinn Ian Nepomniachtchi (2779) er enn númer 5 í heiminum og fjórði í styrkleikaröð mótsins. Veðbankar setja 30 gegn 1 á Nepo en hann verður nú að teljast með sigurstranglegri mönnum. Það þarf engan smá styrkleika til að vinna tvö áskorendamót og Nepo hefur alltaf verið þekktur fyrir styrkleika í hröðum skákum og mikið sjálftraust. Nepo ætti einnig að búa vel að sínum undirbúningi fyrir heimsmeistaraeinvígið og því telur ristjórn að Nepo sé ágætis „bet“.

Heimamaðurinn Teimour Radjabov (2747) frá Azerbaijan hefur kannski lítið látið fyrir sér fara undanfarin ár eða síðan hann vann einmitt þetta mót árið 2019. Teimour er númer 13 á heimslistanum en sjöundi í styrkleikaröð á Heimsbikarmótinu. Þegar Teimour er í gírnum er griðarlega erfitt að leggja hann að velli og hans stíll passar að mörgu leiti vel í svona útsláttarmót. Radjabov er skiljanlega mjög fær í atskákinni og hefur t.a.m. unnið eitt af fjölmörgum elítunetmótum sem fram hafa farið. Veðbankar setja 30/1 á Radjabov.

Gukesh að tafli. Mynd: Heimasíða mótsisn/David Llada.

Indverjinn Dommaraju Gukesh (2750) hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn undanfarið. Gukesh sló rækilega í gegn á síðasta ólympiuskákmóti og á dögunum varð hann yngsti skákmaður sögunnar til að ná 2750 elóstigum! Gukesh er áttundi í styrkleikaröð á mótinu og ellefti stigahæsti skákmaður heims. Veðbankar setja 51/1 á Indverjann unga.

Fyrst við erum í ungstirnum þá er ritstjórn gríðarlega hrifin af Úzbekanum unga Nodirbek Abdusattorov (2725). Úzbekinn er 17. í styrkleikaröð og 23. stigahæsti skákmaður heims. Nodirbek sló í gegn á heimsmeistaramótinu í Fischer slembiskák sem fram fór á Íslandi og það kom á hæla magnaðrar frammistöðu á Ólympíuskákmótinu á Indlandi þar sem hann leiddi lið Úzbekistan gríðarlega óvænt til gullverðlauna.

Úzbekinn virðist hafa stáltaugar og margir sem telja hann framtíðarefni í heimsmeistara. Veðbankar gefa 41/1 á Abdusattorov.

Pólverjinn Jan-Krzysztof Duda (2732) er 20. stigahæsti skákmaður heims og númer 14 í styrkleikaröð. Pólverjinn er hinsvegar ríkjandi meistari en hann lagði Sergey Karjakin í úrslitum árið 2021 eftir að hafa einmitt slegið Magnus Carlsen út í undanúrslitum. Veðbankar gefa Duda 25/1. Ritstjórn telur að Duda hafi tekið smá „one-hit wonder“ árið 2021 og fari ekki langt að þessu sinni.

Myndskreyting: Chess24.

Rússinn Danil Dubov (2716) er alltaf vinsæll skákmaður, hann teflir skemmtilega og af miklu hugmyndaauðgi í byrjunum. Dubov er númer 21 í styrkleikaröð og er 27. stigahæsti skákmaður heims. Dubov er fyrrverandi heimsmeistari í atskák þannig að hann gæti verið eitraður í bráðabönum. Veðbankar setja 83/1 á Dubov.

Þetta eru þeir keppendur sem ritstjórn telur eiga mesta möguleika eða þokkaleg „sleeper picks“ til að koma aðeins frá hlið. Fjölmarga skemmtilega keppendur mætti einnig tína til.

Cypriano Rehan Deng (2147) er númer 202 í styrkleikaröð og kannski ekki likegur til afreka. Deng kemur frá hinu stríðshrjáða landi Suður-Súdan. Suður-Súdan tefldi einmitt í fyrsta skipti með á Ólympíumótinu í Baku. Lið þeirra vakti fyrst athygli íslensku liðstjóranna þar sem þeir hétu eiginlega allir Deng en síðar vöktu þeir athygli okkar fyrir gríðarlega keppnishörku. Deng hefur síðan teflt á tveimur ólympíumótum og heilsar alltaf undirrituðum með virktum!

Peter Svidler þakkaði liðsmönnum sínum sigurinn. Við hlið hans er nýr forseti FIDE, Arkady Dvorkovich sem mætti á mótsstað. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Tvö gömul brýni, Peter Svidler og Vasily Ivanchuk fengu svokallað „wildcard“ frá FIDE og því boðssæti á mótið. Það er alltaf gaman að fylgjast með mönnum á viskualdrinum og báðir hafa þeir komist í undanúrslit á þessu móti og Peter Svidler vann það árið 2011.

Kvennaflokkurinn fer fram á sama tíma. Fyrirkomulagið er það sama en 103 keppendur hefja leik þar og því einni umferð styttra mót.

Nýkrýndur heimsmeistari kvenna Ju Wenjun verður að teljast sigurstranglegust. Hún er stigahæsta virka skákkonan í dag og númer 1 í styrkleikaröð. Veðbankar setja 2.71/1 á kínverska heimsmeistarann.

Goryachkina í viðtali Mynd: FIDE

Rússneska skákkonan Alexandra Goryachkina (2567) er talin næst líklegust. Veðbankar segja 4.05/1 enda er hún næststigahæst á mótinu. Sú rússneska hefur verið ansi stutt frá ærði metorðum undanfarin ár og kannski bara tímaspursmál hvenær hún nær í stóran titil.

Næstar á blaði eru Kateryna Lagno 10/1 og þær Kosteniuk og Tan Zhongyi báðar með 12/1. Bibisara Assaubayeva 51/1 er kannski mest spennandi keppandinn af þeim sem ekki eru taldir allra liklegastir.

Alllavega er ljóst að framundan er mikil skákveisla. Skak.is mun fylgjast vel með!

- Auglýsing -