Team Iceland gegn Serbíu (bullet og hraðskák)

    0
    1836
    Hvenær:
    16. september, 2018 @ 18:00 – 19:00
    2018-09-16T18:00:00+00:00
    2018-09-16T19:00:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    NÆSTA VIÐUREIGN – ALLIR GETA VERIÐ MEÐ!

    Næsta viðureign, sem fram fer sunnudaginn 16. sept kl. 18:00, verður gegn afar sterku liði Serbíu!

    Lið Serba er gríðarlega þétt (sjá hér) og líklega eitt af sterkustu liðum deildarinnar. Þeir unnu allar viðureignir sínar í 1. deild á tímabilinu sem lauk í ágúst, en töpuðu mjög óvænt í úrslitum, fyrst gegn Rússum og næst gegn Úkraínu. Þeir enduðu því í þriðja sæti á síðasta tímabili.

    HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

    Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

    Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!

    DAGSKRÁIN

    - Auglýsing -