Í dag hófust 16 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í Baku í opnum flokki og 8 manna úrslit í kvennaflokki. Segja má að sverðin hafi verið á lofti en 5 af 8 skákum í opnum flokki unnust og helmingur skák í kvennaflokki.
Viðureignir 16-manna úrslita:
The Last 16 of the 2023 #FIDEWorldCup! pic.twitter.com/7Bre4XTwHa
— chess24.com (@chess24com) August 11, 2023
Magnus Carlsen (2835) – Vasyl Ivanchuk (2667)
Carlsen fær að glíma við gamla brýnið Vasyl Ivanchuk í 16-manna úrslitum. Sá gamli kom Magnus á óvart í byrjuninni en Magnus brást við með því að bjóða Ivanchuk upp á að taka peð á miðborðinu. Úkraínumaðurinn þorði ekki í þann slag og má segja að stöðu hans hafi fljótlega tekið að hraka eftir það. Magnus talaði um að hann hefði tekið nokkrar vafasamar strategískar ákvarðanir.
Það kom mörgum á Ivanchuk skyldi gefast upp nokkuð snemma en staðan var algjörlega vonlaus, sérstaklega á þessu getustigi.
Ivanchuk þarf því að næla sér í sigur með hvítu á morgun til að framlengja einvígið.
Fabiano Caruana (2782) – Jan-Krzysztof Duda (2732)
Fabiano Caruana er næststigahæsti maður mótsins eftir að Nakamura datt út. Hann mætir ríkjandi Heimsbikarmeistara, Duda frá Póllandi.
Caruana tefldi byrjunina mjög hratt og byrjaði ekki að hugsa „sjálfur“ fyrr en í 20. leik. Hvítur hafði eitthvað betra en Caruana náði ekki að fá neitt í endataflinu. Mögulega hefði c4 í stað Bc4 gefið einhverja sénsa en staðan var fljót að leysast upp.
Ferenc Berkes (2615) – Pragganandhaa (2690)
Ungverjinn Berkes er langstigalægsti skákmaðurinn sem eftir er í opna flokknum. Hann hefur náð að koma vel á óvart og teflt vel. Hann mætir Hikaru-bananum Pragganandhaa í þessari umferð. Berkes hafði hvítt í fyrri skákinni í dag og bátnum var ekki ruggað. Pragga fær fínan séns á að komast áfram með hvítu á morgun.
Nils Grandelius (2683) – Arjun Erigaisi (2704)
Slæmt tap með hvítu hjá Íslandsvininum Nils Grandelius í fyrri skákinni. Arjun beitti franskri vörn og fékk örlítið þægilegra endatafl sem var þó frekar jafnteflislegt. Nils gerði mistök og Indverjinn náði í risapunkt með svörtu.
Nijat Abasov(2632) – Salem A R Saleh (2661)
Nijat Abasov heldur vonum heimamanna gangandi en hann var nokkuð heppinn með andstæðing í þessari umferð, allavega út frá elóstigum. Azerinn náði í lykilsigur með hvítu mönnunum. Mikill seiglusigur en Salem gerði of mörg mistök í þessari skák.
Leinier Dominguez (2739) – Alexey Sarana (2685)
Leinier vann hér með hvítu. Hann var sleipari í flækjunum og náði að véla skiptamun af Sarana.
Wang Hao (2709) – Gukesh (2744)
Flottur sigur hjá indverska ungstrininu hér með svörtu gegn Wang Hao sem erfitt er að leggja að velli. Ef til vill var einhver þreyta í Kínhverjanum eftir gríðarlega erfiðan bráðabana í gær.
Ian Nepomniachtchi (2779) – Vidit Santosh Gujrathi (2723)
Nepo hélt jafnteflinu tiltölulega auðveldlega með svörtu í fyrri skákinni. Nepo líður vel í bráðabönum og kæmi ekki á óvart ef þetta einvígi færi þangað.
Kvennaflokkur
Tan Zhongyi (2523) – Bella Khotenashvili (2475)
Sú kínverska náði að hanga á frelsingja á d-línunni sem var strandaglópur inni í stöðu svarts. Þetta peð reyndist örlagavaldur og sú kínverska vann mikilvægan sigur.
Nurgyl Salimova (2403) – Polina Shuvalova (2496)
Salimova náði góðum svíðingi og stigalægsti keppandinn sem eftir er kvennamegin er að bíta frá sér heldur betur!
Anna Muzychuk (2504) – Elisabeth Paehtz (2471)
Paehtz heldur áfram að vera traust og nær jafntefli með svörtu gegn sterkum andstæðingi
Harika Dronavali (2500) – Alexandra Goryachkina (2557)
Jafntefli í þessari skák, Goryachkina hafði hvítt.
Upptaka af beinni útsendingu dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna















