Í dag kláruðust 16 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í Baku í opnum flokki og 8 manna úrslit í kvennaflokki. Indverjinn Vidit sló út sjáfan Ian Nepomniachtchi í bráðabana dagsins og í fjórðungsúrslitum eru hvorki fleiri né færri en fjórir Indverjar, hreint ótrúlegt!
Ian Nepomniachtchi (2779) – Vidit Santosh Gujrathi (2723)
Einan viðureigninin í opna flokknum sem fór í bráðabana. Vidit hafði hvítt í fyrri 25+10 skákinni og fórnaði skiptamun fyrir hættuleg færi. Tölvurnar gáfu honum tvisvar „Brilliant Move“

Eftir skiptamunsfórnina er riddari oní en hann má að sjálfsögðu ekki taka vegna Re6+ með fráskák. Eftir 28…Kg6 29.He7!! Bf4 30.He6+ Kxg5 kom 31.g3!
Enn ein fallega gervifórnin. Svartur má ekki drepa biskupinn útaf máti með peði á h4, magnað!
Eftir flækjur komst Vidit í endatafl peði yfir en Nepo var með nógu virkan hrók til að ná jafnteflinu.
Í seinni 25+10 skákinni gerðist lítið. Vidit fékk montréttinn á jafnteflinu ef eitthvað var þar sem hann var peði yfir í endataflinu en þar voru mislitir biskupar og hefði þurft einhverskonar smurvélar-afleiki til að einhver gæti unnið þar. Jafnt og farið í 10+10 skákir.
Vidit virtist einfaldlega vera að tefla aðeins betur og það kom á daginn í fyrri 10+10 skákinni. Indverjinn hefði getð endurtekið leiki með svörtu í miðtaflinu en var greinilega kominn með gott sjálfstraust, hann hafnaði þráleiknum með lítinn tíma á klukkunni og sveið Rússann.
Nú þurfti Nepo að vinna með svörtu og hann greip til örþrifaráða og bauð upp á hollenska vörn sem svar við 1.d4. Vidit hélt stjórn allan tímann og það var smá örvæntingarbragur á taflmennsku Nepo lengst af. Vidit vann sanngjarnan sigur og er kominn áfram!
The last moments of Vidit vs Nepomniachtchi. #FIDEWorldCup pic.twitter.com/N05ufnVK71
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 14, 2023
Úrslit: Vidit fer áfram 4-2!
Viðureignir í 8-manna úrslitum. Athyglisverður punktur að auk „yfirtöku“ Indverjana þá eru öngvir Rússar í 8-manna úrslitum í fyrsta skipti!
With Vidit's win over Nepomniachtchi, we have 4 Indians in the quarterfinals of the #FIDEWorldCup Open section, and zero Russians, for the first time ever! pic.twitter.com/pTxpovhUyI
— chess24.com (@chess24com) August 14, 2023
Carlsen – Gukesh
Viðureignin sem allir eru að bíða eftir. Stigahæsti skákmaður allra tíma og næsta heimsmeistaraefni Indverja!
Caruana – Dominguez
Bandaríkjamennirnir mætast. Caruana hefur gott skor á Dominguez en allt getur gerst í svona stuttum viðureignum.
Pragganandhaa – Erigaisi
Uppgjör ungra indverskra stjarna. Það er 100% að það verður lágmark einn Indverji í undanúrslitum.
Vidit – Abasov
Vidit og heimamaðurinn Abasov. Þessir menn hafa varla átt von á því að vera að tefla um að komast í undanúrslit á Heimsbikarmótinu en það er einfaldlega orðið að staðreynd!
Kvennaflokkur
Nurgyl Salimova (2403) – Polina Shuvalova (2496)
Salimova er langstigalægst af þeim sem eftir eru í kvennaflokki en hún var greinilega ekki búin að fá minnismiða þess efnis! Lykilaugnablikið var þó yfirsjón hjá Shuvalovu í fyrri 25+10 skákinni.
Shuvalova missti niður vinningsstöðu með 51…Hc1+? þess í stað hefði 51…g2! unnið. Þessi víxlun á leikjaröð reyndist afdrifarík. Ef svartur fer af stað með g-peðið fyrst þá hótar hann að vekja upp með skák. Með því að eyða skákinni fyrst þá hefur hvítur tíma til að hóta að vekja upp með skák. Þ.e.a.s. eftir Hf7+ hjá hvítum og Ke5 í báðum varíöntum.
Í seinni skákinni fengum við svo að sjá Drakúla-Frankenstein varíantinn í Vínarleik. Ekki oft (aldrei!) sem sú byrjun sést á hæstu stigum skákarinnar! Salimova var sterkari á svellinum í flækjunum og vann báðar skákirnar og fer áfram.
Úrslit: Salimova vinnur 3-1!
Anna Muzychuk (2504) – Elisabeth Paehtz (2471)
The #FIDEWorldCup tiebreaks are deadly serious! 😀 pic.twitter.com/4yJfwdemXd
— chess24.com (@chess24com) August 14, 2023
Viðureign þessara tveggja varð æsispennandi. Paehtz var fyrri til og vann með svörtu í fyrri 25+10 bráðabanaskákinni. Muzychuk svaraði vel og náði að hanga á umframpeði sem Paehtz gaf í London með hvítu og jafnaði leika.
Muzychuk vann fyrstu 10+10 skákina með góðum svíðing og hefði átt að fara áfram í þeirri seinni.
Hér hefði 46.Bd4 meira og minna tryggt jafnteflið og einvígið. Þess í stað kom 46.Hb6?? og eftir 46…Ha8 er svartur með hvítan í mátneti þannig að lið tapast.
Úrslitin réðust svo eiginlega í fyrri 5+3 skákinni. Þar var Elisabet Paehtz með algjört yfirburðatafl hér.
Nú kom eldrauður leikur 24…Dc6?? og hvítur getur notað leppunina 25.Dxe4! og stendur allt í einu til vinnings. Muzychuk var svo ekki í vandræðum í síðustu skákinni, var aldrei með verra og skipti betri stöðu upp í mislita biskupa af öryggi þar sem jafnteflið nægði.
Úrslit: Muzychuk hafði það á endanum 4,5-3,5
Harika Dronavali (2500) – Alexandra Goryachkina (2557)
Annað hörkueinvígi sem réðist ekki fyrr en í 5+3 hlutanum. Þær skiptust á vinningum í 25+10 og gerðu svo jafntefli í 10+10. Í erfiðri stöðu lék Dronavali af sér.
32.He3? hvítur varð að reyna að halda sé rmeð 32.Dxa4 nú kom 32…Hxd4! og umframpeð svarts orðin of mörg auk þess sem b2 féll fljótlega.
Úrslit: Goryachkina áfram 4,5-3,5
It's almost an exact repeat of the 2021 World Cup semi-final! 🤯
Aleksandra Goryachkina, Tan Zhongyi, and Anna Muzychuk all make it for the 2nd time in a row!The only newcomer is Nurgyul Salimova, who replaces the defending champion Alexandra Kosteniuk!#chess #womeninchess https://t.co/ySqkkRRdzc pic.twitter.com/y9P3hOsJ6X
— Women's Chess Coverage (@OnTheQueenside) August 14, 2023
Upptaka af beinni útsendingu dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna















