Lokaumferð Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur fór fram í gærkvöldi. Bárður Örn Birkisson hafði þegar tryggt sér sigur á mótinu og eina spennan hvort hann næði fullu húsi. Stefán Bergsson og Hilmir Freyr Heimisson börðust um annað sætið. Ingvar Wu Skarphéðinsson tryggði sér sæmdartitilinn skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur sem efsti TR-ingurinn á mótinu.
Staðan fyrir umferðina var svona:

Bárður hafði 8 vinninga og Hilmir stóð aðeins betur í baráttunni um 2. sætið.
Bárður Örn Birkisson – Stefán Steingrímur Bergsson

Stefán kórónaði fína frammistöðu á þessu móti með því að verða eini keppandinn til að tapa ekki gegn Bárði! Stefán hafði svart og í miðtafli sem var í jafnvægi nýtti Stefán sér að Bárður missti þráðinn og hirti mikilvægt peð og hafði auk þess þægilegri stöðu.
Eftir sem áður stórkostlegt mót hjá sigurvegaranum, Bárði sem hlaut 8 vinninga af 9. Árangur Stefáns hefði dugað til sigurs á mörgum Haustmótum, en ekki í þetta skiptið!
Jóhann Ingvason – Hilmir Freyr Heimisson

Eftir úrslit Stefáns þurfti Hilmir jafntefli til að skipta öðru sæti eða sigur til að ná því einn. Jóhann tefldi hinsvegar feykivel og ef eitthvað er þá slapp Hilmir með skrekkinn þar sem Jóhann var á tímabili tveimur peðum yfir.
7 af 9 hjá Hilmi og annað sætið.
Ingvar Wu Skarphéðinsson – Lenka Ptacnikova
Ingvar Wu innsiglaði sæmdarheitið Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur með góðu jafntefli í lokaumferðinni.
Gauti Páll Jónsson – Þorvarður F. Ólafsson

Gauti tefldi skínandi fína skák og vann gott endatafl gegn Þorvarði.
Haraldur Haralsson – Björn Hólm Birkisson
Björn hafði betra tafl lengst af, fyrst skiptamun yfir og svo peði en tókst ekki að láta liðsmuninn telja, jafntefli niðurstaðan.

Lokastaðan

Glæsilegur sigur hjá Bárði. Hann er janframt aflakóngur þegar kemur að elóstigum en hann hækkar um 50 stig fyrir frammistöðuna. Stefán Bergsson og Ingvar Wu fá einnig væna hækkun.
Opinn flokkur
Jóhann Ragnarsson lagði nafna sinn Jónsson að velli í lokaumferðinni og kom því fyrstu í mark með 7,5 vinning af 9.


Adam með fínan sigur og endar í 2. sæti með fínan stigagróða. Flott mót hjá Mikael Bjarka líka með +72 stig.
















